Setup and Config
Getting and Creating Projects
Basic Snapshotting
Branching and Merging
Sharing and Updating Projects
Inspection and Comparison
Patching
Debugging
External Systems
Server Admin
Guides
- gitattributes
- Command-line interface conventions
- Everyday Git
- Frequently Asked Questions (FAQ)
- Glossary
- Hooks
- gitignore
- gitmodules
- Revisions
- Submodules
- Tutorial
- Workflows
- All guides...
Administration
Plumbing Commands
- 2.30.1 → 2.34.1 no changes
- 2.30.0 12/27/20
- 2.29.1 → 2.29.3 no changes
- 2.29.0 10/19/20
- 2.28.1 no changes
- 2.28.0 07/27/20
- 2.27.1 no changes
- 2.27.0 06/01/20
- 2.21.1 → 2.26.3 no changes
- 2.21.0 02/24/19
- 2.13.7 → 2.20.5 no changes
- 2.12.5 09/22/17
- 2.10.5 → 2.11.4 no changes
- 2.9.5 07/30/17
- 2.5.6 → 2.8.6 no changes
- 2.4.12 05/05/17
- 2.3.10 no changes
- 2.2.3 09/04/15
SAMANTEKT
git init [-q | --quiet] [--bare] [--template=<sniðmótaskrá>] [--separate-git-dir <git skrá>] [--object-format=<snið>] [-b <nafn greinar> | --initial-branch=<nafn greinar>] [--shared[=<leyfi>]] [directory]
ÚTSKÝRING
Þessi skipun býr til tóma Git hirslu - í raun .git
skrá með undirskrám fyrir objects
(viðföng), refs/heads
(tilvísanir/hausar), refs/tags
(tilvísanir/merki), og sniðmátsskjöl. Upphafsgrein án innleggja verður búin til (sjá --initial-branch
valmöguleikann hér að neðan fyrir heiti hennar).
Ef $GIT_DIR
umhverfisbreytan er uppgefin þá tilgreinir hún slóð til þess að nota í staðinn fyrir ./.git
fyrir grunnbyggingu hirslunnar.
Ef viðfangageymslan er tilgreind með $GIT_OBJECT_DIRECTORY
(viðföng skrá) umhverfisbreytunni þá eru SHA-1 öryggisskrárnar búnar til þar undir - annars er frumstillt skrá samkvæmt $GIT_DIR/objects
(skrá viðföng) notuð.
Að framkvæma git init í hirslu sem þegar er til er öruggt. Það mun ekki skrifa yfir það sem þegar er í hirslunni. Helsta ástæðan fyrir því að endurframkvæma git init er til þess að taka með sniðmát sem nýlega hefur verið bætt við (eða til þess að færa hirsluna á nýjan stað ef --separate-git-dir (aðskilinn git skrá) er gefið upp).
VALMÖGULEIKAR
- -q
- --quiet
-
Prenta einungis villu- og varnaðarboð; allt annað frálag er þaggað.
- --bare
-
Búa til nakta hirslu. Ef
GIT_DIR
(git skrá) umhverfisbreytan er ekki tilgreind er hirslan búin til í núgildandi vinnuskrá. - --object-format=<snið>
-
Gefa upp snið viðkomandi viðfangs (reikniforskrift mylnuskrár) fyrir hirsluna. Gild gildi eru sha1 og (ef virkt) sha256. Forstillingin er sha1.
ÞESSI VALMÖGULEIKI ER Á TILRAUNASTIGI! SHA-256-stuðningur er á tilraunastigi og enn á frumstigi. Hirsla sem hefur SHA-256 er almennt ekki fær um að deila vinnu með "venjulegum" SHA-1-hirslum. Til dæmis ætti að gera ráð fyrir því að innviðaskjalasnið Git sem tengjast SHA-256 geti breyst þannig að þau verði ekki samhæfanleg aftur í tímann. Notaðu `--object-format=sha256`einungis í prófunum.
- --template=<sniðmót_skrá>
-
Tilgreina skrána sem geymir þau sniðmót sem verða notuð. (Sjá "SNIÐMÁTASKRÁ" hlutann hér að neðan.)
- --separate-git-dir=<git skrá>
-
Í stað þess að frumstilla hrisluna sem skrá sem annað hvort
$GIT_DIR
eða./.git/
, búa til textaskrá þar sem inniheldur slóðina til hinnar raunverulegu hirslu. Þessi skrá virkar eins og táknrænn Git hlekkur til skrárinnar sem er ómeðvitaður um skráasafnið.Ef þetta er endurfrumstilling verður hirslan færð eftir tilgreindri slóð.
- -b <nafn greinar>
- --initial-branch= <nafn greinar>
-
Notaðu tiltekið nafn fyrir upphafsgrein hinnar nýsköpuðu hirslu. Ef ekkert er tilgreint, nota sjálfgefið nafn (sem er
master
eins og er, en það gæti breyst í framtíðinni; hægt er að breyta sjálfgefnu nafni með stillingabreytunniinit.defaultBranch
). -
Tilgreina að Git hirslunni muni verða deilt meðal fjölmargra notenda. Þetta leyfir notendum sem tilheyra sama hópi að ýta gögnum inn í þá hirslu. Þegar þessi tilgreining er til staðar er stillingabreytan "core.sharedRepository" (kjarni deild hirsla) stillt þannig að skjöl og skrár undir
$GIT_DIR
(git skrá) eru búnar til með umbeðnum leyfum. Þegar þessi tilgreining er ekki til staðar notar Git leyfi sem koma frá umask(2) (leyfasetningar skjala).Valmöguleikinn getur haft eftirfarandi gildi, frumstilltur á group (hópur) ef engin gildi eru gefin:
- umask (eða false)
-
Nota leyfi frá umask(2) (leyfasetningar skjala). Þetta er frumstillingin þegar
--shared
(deildur) er ekki uppgefinn. - group (eða true)
-
Gera hirsluna hópskrifanlega (og g+sx þar sem git hópurinn er mögulega ekki aðalhópur allra notenda). Þetta er notað til þess að losa um leyfisgildi umask(2) (leyfasetningar skjala) gildis sem annars vegar er öruggt. Athugaðu að umask gildið er enn virkt fyrir leyfi sem ná yfir önnur gögn (t.d. ef umask er 0022, mun það að nota group (hópur) ekki fjarlægja lesréttindi annarra notenda sem eru ekki í hópnum). Sjá 0xxx fyrir hvernig á nákvæmlega að stilla leyfi hirslunnar.
- all (eða world eða everybody)
-
Sama og group, en gerir hirsluna lesanlega fyrir alla notendur.
- 0xxx
-
0xxx er áttundartala og hvert skjal fylgir fyrirkomulaginu 0xxx. 0xxx tekur ekki tilliti til gildis umask(2) (leyfasetningar skjala) sem tilgreint er af notanda (og ekki einungis víkka leyfi eins og group (hópur) og all (allir) gera). 0640 býr til hirslu sem er lesanleg af hóp, en ekki skrifanleg af hóp eða opin öðrum. 0660 mun búa til hirslu sem er lesanleg og skrifanleg fyrir núverandi notanada og hóp, en lokuð öllum öðrum.
Í deildum hirslum er stillingarvalmöguleikinn receive.denyNonFastForwards
(viðtaka neita ekki framspóla) forstilltur sem gildur svo að þú getur ekki ýtt gögnum sem ekki framspóla inn í hana með þvingunum.
Ef þú gefur upp skrá, verður skipunin framkvæmd í henni. Ef skráin er ekki til verður hún búin til.
SNIÐMÓTASKRÁ
Skjöl og skrár í sniðmótaskránni sem hafa ekki nafn sem byrjar á punkti verða afrituð yfir í $GIT_DIR
(git skrá) eftir að hún er búin til.
Sniðmótaskráin verður eitt af eftirtöldu (í röð):
-
breytan sem gefin er með
--template
(sniðmót) valmöguleikanum; -
innihald
$GIT_TEMPLATE_DIR
(git sniðmót skrá) umhverfisbreytunnar; -
stillingabreytan
init.templateDir
(frumstilla sniðmót skrá); eða -
forstillta sniðmótaskráin:
/usr/share/git-core/templates
(notandi deila git-kjarni sniðmót).
Forstillta sniðmótaskráin hefur einhverjar undirskrár, tillögur um "exclude patterns" (hunsunarmynstur) (see gitignore[5] (hlekk-git git-hunsa), og dæmi um krækjuskjöl.
Krækjudæmin eru öll forstillt sem óvirk. TIl þess að virkja eitt af krækjudæmunum þarf að endurnefna það með því að fjarlægja .sample
(dæmi) viðskeytið.
Sjá githooks[5] (hlekk-git git-krækjur) fyrir frekari upplýsingar um það hvernig á að hrinda krækjum í framkvæmd.
GIT
Hluti af git[1] fylkingunni